Vörn
Krómagnonmennirnir notuðu eldinn stundum til þess að fæla burt dýr sem ógnuðu þeim. Auk þess gætu þeir hafa notað eld til að hjálpa þeim að reka dýr fram af klettum, þar sem að það hafa fundist beinagrindur dýra, stundum í hundraðatali, við rætur kletta og gjáa. Þeir gætu líka hafa brennt niður skóga til að afla sér matar og þegar rándýr herjuðu á þá brenndu þeir þau og fældu þau þar með burt frá sér.